Hagnýt rekstrar- og kerfisráðgjöf

Rekstur <> Kerfi

Rínarsteinn hjálpar fyrirtækjum að setja upp og nýta kerfin sín á hagkvæman og skynsamlegan hátt með hagnýtum innleiðingum, viðeigandi tengingum og skýrri yfirsýn yfir reksturinn.

Áherslur

Við setjum upp og tengjum gögn, ferli og skýrslugerð þannig að daglegur rekstur verði einfaldari og hnitmiðaðri.

Dynamics 365 Business Central

Betri nýting á fjárhags- og rekstrarkerfinu sem fyrirtækið notar dags daglega.

  • Ferli, vörur, viðskiptavinir og reikningar
  • Tengingar við sölukerfi, gögn og skýrslur
  • Hagnýtar innleiðingar sem passa rekstrinum

Shopify

Sölugögn sem flæða betur inn í rekstur, fjárhag og ákvörðunartöku.

  • Pantanir, vörur og viðskiptavinir
  • Samræming við Business Central
  • Skýrari mynd af sölu og framlegð

Fabric / Power BI

Yfirsýn sem byggir á réttum gögnum og svarar raunverulegum rekstrarspurningum.

  • Gagnalíkön og stjórnendaskýrslur
  • Sala, birgðir, viðskiptavinir og fjárhagur
  • Greining sem hægt er að útskýra og treysta

Hreint og praktískt.

Við byrjum á því sem skiptir máli í rekstrinum: hvaða gögn eiga að flæða, hvar ábyrgðin liggur og hvaða upplýsingar vantar til að taka betri ákvarðanir.

Ég aðstoða viðskiptavini við að finna réttu lausnirnar fyrir þeirra rekstur. Nálgunin er kerfishlutlaus: það skiptir meira máli að velja rétt kerfi, rétt hugbúnaðarhús eða rétta sérsmíði en að fylgja fyrirfram ákveðinni lausn.

Í sumum tilvikum getur verið hagkvæmara og einfaldara að byggja eigin lausnir, sérstaklega þegar gervigreind og nútíma þróunartól stytta leiðina frá hugmynd að nothæfri útfærslu.

Um mig

Rínarsteinn er í eigu og rekið af Arnóri Hreiðarssyni. Arnór vinnur á mörkum rekstrar, fjármála, laga og tækni, með áherslu á hagnýtar lausnir sem nýtast í daglegum rekstri.

Arnór er með meistarapróf í lögfræði, með áherslu á skatta- og fjármunarétt, og MBA frá EHL í Lausanne í Sviss. Hann hefur reynslu af eigin fyrirtækjarekstri, fyrirtækjastjórnun, ráðgjöf og flóknum innleiðingum þar sem margir hagaðilar þurfa að vinna saman yfir lengri tíma.

Viltu brúa bilið milli kerfanna þinna og reksturs þíns?

Sendu stutta lýsingu á því sem þarf að einfalda, tengja eða skýra.

rinarsteinn@rinarsteinn.is